Skólastarfið í Urriðaholti

Urriðaholtsskóli starfar á tveimur skólastigum, leik- og grunnskóla og fullvaxinn verður hann fyrir börn á aldrinum 1 til 15 ára. Skólinn tók á móti sínum fyrstu nemendum í byrjun apríl 2018 en þá voru opnuð tvö heimasvæði fyrir leikskólastig, Klif og Kelda. Haustið 2018 tók svo grunnskólastig til starfa og í skólanum í dag eru nemendur frá 1 árs og upp í 4. bekk grunnskóla en það er sá árgangur (börn fædd 2009) sem mun vaxa upp. Fullbyggður verður Urriðaholtskóli með allt að 700 börn á grunnskólaaldri og sex deildir leikskóla með um 120 heilsdagsplássum. Skólinn verður því vel í stakk búinn að taka við nýjum íbúum í Urriðaholti.

Í fyrsta áfanga verða sex heimasvæði leikskólabarna fyrir um 120 heildagspláss og fjögur heimasvæði grunnskólabarna sem rúmar vel 240 nemendur. Þá verður útibú frá Bókasafni Garðabæjar á neðri hæð hússins sem og útibú frá Tónlistarskóla Garðabæjar.

Grunnskólinn ásamt tilheyrandi aðstöðu stendur á stórri lóð ofarlega í hverfinu, með góða útsýn til allra átta og góð tengsl við megin göngustíga hverfisins og greiða aðkomu akandi. Fullbyggt verður skólahúsnæðið um 10-11 þúsund fermetrar með íþróttamannvirkjum og sundlaug.​

Skólar 960pix loka

Teymisvinna og samkennsla árganga er ríkjandi í skólanum þar sem hverju barni er mætt þar sem það er statt. Vörður skólans eru Þekking – Leikni – Viðhorf. Mikið er lagt upp úr því að vinna með skapandi og opin efnivið þar sem leikurinn fær mikið pláss á báðum skólastigum. Færni og fimi í leik og starfi er höfð að leiðarljósi til að byggja sterkan grunn og áhersla á að vinna með fjölbreyttar en um leið gagnreyndar kennsluaðferðir. Barnið og þarfir þess eru ávallt í brennidepli um leið og starfsfólk skapar sér gott skólasamfélag fyrir börn, foreldra samstarfólk og nærumhverfið.

Hagnýtar upplýsingar

Urriðaholtsskóli, Vinastræti 1-3 í Garðabæ.
Símanúmer skólans: 591-9500. Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00-15:45 alla virka daga.
Skólastjóri: Þorgerður Anna Arnardóttir
Aðstoðarskólastjóri: Una Guðrún Einarsdóttir
Sérkennslustjóri: Guðbjörg Vilhjálmsdóttir
Umsjónarmaður Frístunda: Finnur Jónsson og beinn sími eftir kl. 14:00, 591-9526
Netfang: urridaholtsskoli@urridaholtsskoli.is
Vefsíða: http://urridaholtsskoli.is

Hannað fyrir fjölbreytta nýtingu

Við hönnun skólans var hugað að alhliða nýtingu hans fyrir skólastarf, tómstundir, íþróttaiðkun, námskeiðahald og félagslíf íbúa. Hægt verðurað nýta rými skólans með afar fjölbreyttum hætti frá morgni til kvölds og er hann ekkert síður hugsaður sem alhliða félagsmiðstöð íbúanna en menntastofnun barnanna.

Heimasvæði fyrir hvern árgang

Hönnun skólans byggir á „opnu“ skipulagi fyrir hvern árgang. Þannig eru engar hefðbubndnar bekkjarstofur fyrir staka bekki eins og tíðkast hefur. Þetta fyrir komulag hefur rutt sér til rúms hérlendis á liðnum árum og eru nokkur dæmi um slíka skóla á höfuðborgarsvæðinu. Hver árgangur hefur eitt svokallað heimsvæði sem skiptist í stórt sameiginlegt kennslusvæði og nokkur minni lokuð rýmið ásamt vinnuastöðu fyrir kennara árgangsins.

Loftmyndir Urriðaholtsskóli 2018 0010
Urriðaholtsskóli sumarið 2018.
Urriðaholtsskóli 2018 1813
Fyrstu grunnskólabörnin á spjalli við kennara haustið 2018

Tónlist, sérgreinar og félagsstarf

Auk almennra kennslurýma verða sérgreinastofur í skólanum, s.s. heimilisfræði, smíði, myndmennt og textíl. Þær mynda sameiginlega eitt svæði í byggingunni með aðstöu fyrir sérgreinakennara. Þá verða auk tónmenntastofu einnig litlar kennslustofur fyrir tónlistarkennslu, eins konar útibú frá tónlistarskóla bæjarins. Félagsmiðstöð fyrir unglinga hverfisins verður jafnframt í byggingunni. Lagt er upp úr aðgengi að þessum sérrýmum eftir lokun skóla á köldin til afnota fyrir íbúa hverfisins og annarra bæjarbúa vegna námskeiða, sem og tengsl við félagsmiðstöð.

Hönnun íþróttamannvirkja skólans standa jafnframt yfir. Gert er ráð fyrir íþróttasal og sundlaug ásamt búningsherbergjum og eru mannvirkin jafnt ætluð fyrir skólastarf sem almenna notkun.

Metnaðarfull skólastefna Garðabæjar

Garðabær hefur kappkostað að reka góða skóla þar sem fram fer metnaðarfullt og framsækið skólastarf. Megináhersla er lögð á samfellu í námi barna og þjónustu við þau frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til átján ára aldri er náð. Það kallar á öflugt samstarf fagfólks þvert á skólastig, samvinnu við nemendur og forráðamenn, sveigjanleg skólaskil og einstaklingsmiðað nám. Mikið er lagt upp úr góðu samstarfi milli íbúa og stofnana bæjarins til að stuðla að farsælu skólasamfélagi.

Áhersluatriði skólasamfélagsins í Garðabæ:

  • Þjónusta við börn frá því að fæðingarorlofi lýkur
  • Eftirfylgni með börnum og ungmennum fram að 18 ára aldri
  • Samfellt nám barna og ungmenna
  • Einstaklingsmiðað nám og námshraði
  • Virkt samstarf heimila og skóla
  • Frjálst val um skóla
  • Sjálfstæði skóla til að marka sér sérstöðu
  • Fjölþætt ráðgjafa- og stoðþjónusta skóla
  • Samræmt skóladagatal leikskóla og grunnskóla
  • Heilsársopnun leikskóla
  • Gott námsumhverfi
  • Fjölbreyttum tækifæri nemenda til hreyfingar og útiveru
  • Lýðræðislegir starfshættir skóla
  • Jákvæður skólabragur
  • Gott starfsumhverfi
  • Virk símenntun starfsfólks

Áhersla á umhverfið er rauði þráðurinn

Línurnar fyrir uppbyggingu skólastarfs í Urriðaholti voru strax lagðar í rammaskipulagi Urriðaholts og umtalsverð undirbúningsvinna hefur farið fram á vegum fræðslu- og menningasviðs Garðabæjar í samstarfi við arkitekta og ráðgjafa.

Garðabær samþykkti sérstaka umhverfisstefnu fyrir skóla í Urriðaholti í samræmi við áherslur hverfisins í umhverfismálum. Þar er áhersla lögð á nýta umhverfið og kosti þess í daglegu skólastarfi, kennslu og leik. Markmiðið er að skólarnir verði í farabroddi í almennri þróun umhverfisvænna skóla og skapi sér skóla- og kennslustefnu sem samræmist nútíma áherslum á sviði umhverfismála. Ennfremur að skólarnir leggi sérstaka áherslu á vatnabúskap svæðisins með því greina umhverfisáhrif sjálfbærra ofanvatnslausna í Urriðaholti og að nemendur séu virkjaðir til þátttöku í vöktun Urriðavatns.

Unnið verður að því að skólinn fái hina alþjóðlegu BREEAM umhverfisvottun en hún tekur til þeirra þátta byggingarinnar sem lágmarka neikvæð umhverfisáhrif hennar og stuðla að sjálfbærni. Þess má geta að hús Náttúrufræðistofnunar Ísland í Urriðaholti var eitt af fyrstu húsum hér á landi til að fá BREEAM vottunina.

1331 Aðalaðkoma1331 Norðurhliðin
Í umhverfisstefnu fyrir skóla í Urriðaholti er sérstök áhersla lögð á vatnabúskap svæðisins með því nemendur taki þátt í að greina umhverfisáhrif sjálfbærra ofanvatnslausna í Urriðaholti og vöktun Urriðavatns.

Tengt efni