6.04.2018

Fjölmennur fundur um deiliskipulag austurhluta Urriðaholts - myndir

Almennur kynningarfundur um deiliskipulagstillögu fyrsta áfanga austurhluta Urriðaholts var haldinn þriðjudaginn 3. apríl síðastliðinn í Urriðaholtsskóla. Tæplega eitt hundrað manns komu á fundinn til að hlýða á kynningu tillögunnar, spyrja spurninga og gera athugasemdir. Fjölmenni var úr hópi íbúa í Urriðaholti, sem notuðu tækifærið í leiðinni til að skoða skólann, en leikskólahluti hans tók til starfa þennan sama dag..

Deiliskipulagið sem var til kynningar nær til 21,5 hektara svæðis í austurhluta Urriðaholts. Þar er gert ráð fyrir íbúðahverfi fyrir u.þ.b. 495 íbúðir í fjölbýli (2-5 hæðir), rað-, par- og einbýlishúsum (1-2 hæðir). Íbúðirnar eru af mismunandi stærð og geta hentað fyrir alla aldurshópa. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir almenningsgarði með íþróttaaðstöðu.

Hér að neðan eru nokkrar myndir frá fundinum.

IMG 2708
IMG 2688
Boðið var upp á ljúffenga sveppasúpu.
IMG 2734
Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur skýrir málin.
IMG 2686
Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla sýndi aðstöðuna í leikskólanum, sem er fyrsta skóladeildin sem tekur til starfa.
IMG 2712
Fylgst af athygli með kynningunni.
IMG 2723
Foreldrar og börn nutu umhverfisins í leikskólanum.
IMG 2701
Þessi byrjar í leikskólanum í Urriðaholti í haust.
IMG 2718
IMG 2736
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir frá ráðgjafarfyrirtækinu Alta, sem hefur stýrt skipulagsvinnunni í Urriðaholti, fer yfir tillögurnar með áhugasömum íbúum.
IMG 2741
Sigurður Guðmundsson, formaður skipulagsnefndar og Gunnar Einarsson bæjarstjóri.
IMG 2744
Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf. t.v. á tali við íbúa í hverfinu.
IMG 2757
Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur, Sigurður Guðmundsson, formaður skipulagsnefndar og Egill Guðmundsson arkitekt.
IMG 2758
Ein af skýringarmyndum deiliskipulagstillögunnar með yfirliti um götuheiti og útlínur húsa.

Tengt efni